Iris Deane er ung og ævintýragjörn kona sem lendir í skipbroti á ferðalagi sínu um Suður-Kínahaf. Sem betur fer er henni bjargað af sjómanninum Robert Jenkins, sem er þó ekki allur þar sem hann er séður. Saman reyna þau að lifa af á eyðieyju með litlar vistir, þar sem þau lenda í fjölda ævintýra. En ástin er alltaf handan við hornið ...
Bókin naut mikilla vinsælda á Íslandi áður fyrr sem hluti af Sögusafni heimilanna.
Persónurnar og notkun á tungumáli í verkinu endurspegla ekki skoðanir útgefandans. Verkið er gefið út sem sögulegt skjal sem inniheldur lýsingar á tíðaranda og skynjun manna sem tíðkaðist á tímum skrifanna.